Ella sprella

Velkomin á bloggið mitt. Ég er ekkert rosalega klár í þessu, er bara að byrja. En fyrst þú ert hérna ekki gleyma að senda mér póst.

mánudagur, nóvember 07, 2005

Skemmtileg sída!

Var ad rekast á hreint ótrúlega skemmtilega heimasídu. Slódin er www.stilbrot.com/trollafell. Thad er sem sagt verid ad gefa út bókina Trøllafell. Jólagjøfin í ár fyrir børn og unglinga. Á thessari sídu er hægt ad lesa um høfund bókarinn og bókina sjálfa en thad sem er ennthá skemmtilegra er ad thad er hægt ad fara í tølvuleik og fá persónuleikagreiningu!! Ég tók persónuleikaprófid og var mjøg ánægd med mína persónuleikagreiningu:

Partítröll
Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.
Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur. Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu. Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.