Ella sprella

Velkomin á bloggið mitt. Ég er ekkert rosalega klár í þessu, er bara að byrja. En fyrst þú ert hérna ekki gleyma að senda mér póst.

fimmtudagur, janúar 05, 2006

Vaki og vaki

Þá hefst enn önnur tilraun mín til að viðhalda þessu mjög svo lítt uppfærða bloggi. Ég held nú að það stafi aðallega af því að ég hef ekkert að segja. Áramótin voru fín og kvöldið á undan einnig mjög gott. Kíktum á Ítalíu með Sif og Geir og borðuðum á okkur gat, héldum síðan skrallinu áfram á 101 bar og síðan 22. Áramótunum var fyrst eytt í faðmi minnar fjölskyldu í Rjúpufellinu og síðan skundað í partý til hans Bjössa í Kópavoginum. Við löbbuðum síðan heim um fjögurleytið og það var bara fínt. Smá kuldi en útsýnið yfir Kópavog og Reykjavík geðveikt.

Annars finnst mér bara ég vera í nokkurs konar biðstöðu. Veit voða lítið hvað ég á af mér að gera og er bara að bíða eftir að komast út í skólann. Er reyndar búin að kíkja tvisvar í sund og síðan ætla ég að skella mér á æfingu á morgun.

Sem sagt brjálað að gera...........eða þannig.